Sony Xperia T2 Ultra - Stillingar fyrir MMS og internet

background image

Stillingar fyrir MMS og internet

Til að senda margmiðlunarskilaboð eða komast á netið þegar ekkert Wi-Fi® net er til

staðar þarftu að vera með virka farsímatengingu með réttum internet- og MMS-stillingum.

Hér eru nokkrar ábendingar:

Í flestum farsímakerfum og hjá flestum símafyrirtækjum eru internet- og MMS-stillingar

forstilltar í tækinu. Þú getur þá byrjað að nota internetið og senda margmiðlunarskilaboð

undir eins.

Í sumum tilvikum færðu þann valkost að hlaða niður internet- og MMS-stillingum þegar

þú kveikir á tækinu í fyrsta skipti með SIM-korti í. Einnig er hægt að hlaða þessum

stillingum niður síðar frá stillingavalmyndinni.

Þú getur hvenær sem er bætt við og breytt eða eytt internet- og MMS-stillingum í tækinu.

Ef þú breytir eða eyðir internet- eða MMS-stillingu óvart skatlu sækja stillingarnar aftur.

Ef þú kemst ekki á netið í gegnum farsímanet eða ef margmiðlunarskilaboð virka ekki þótt

internet- og MMS-stillingar hafi verið sóttar, sjá villuleit fyrir tækið þitt á

www.sonymobile.com/support/

varðandi vandamál við nettengingu, farsímagögn og

MMS.

Ef kveikt er á STAMINA-stillingu til að spara orku er öll gagnumferð stöðvuð þegar slökkt er á

skjánum. Ef þetta veldur vandræðum með tengingu geturðu prófað að undanskilja einhver forrit

eða þjónustur frá stöðvun á gagnaumferð eða slökkva tímabundið á STAMINA-stillingu. Frekari

upplýsingar má sjá í

Yfirlit yfir eiginleika STAMINA-stillingar

á bls. 22 .

Stillingum fyrir netið og MMS hlaðið niður

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Niðurhal stillinga.

3

Pikkaðu á

Samþykkja. Þegar stillingarnar hafa verið sóttar birtist á stöðustikunni

og sjálfkrafa kviknar á gagnatengingu.

Ef ekki er hægt að sækja stillingarnar í tækið skaltu athuga sendistyrk farsímakerfisins. Færðu

þig á opið svæði sem er laust við hindranir eða færðu þig nær glugga og reyndu aftur.

Til að bæta internet- og MMS-stillingum handvirkt inn

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Farsímakerfi.

3

Pikkaðu á

Heiti aðgangsstaða > .

4

Pikkaðu á

Nafn og sláðu viðeigandi heiti inn.

5

Pikkaðu á

APN: og sláðu inn heiti aðgangsstaðarins.

6

Sláðu allar aðrar upplýsingar inn eins og þarf. Hafðu samband við símafyrirtækið

þitt fyrir frekari upplýsingar ef þú veist ekki hvaða upplýsingar þarf.

7

Þegar því er lokið pikkarðu á og síðan á

VISTA.

29

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Sóttar internets- og MMS-stillingar skoðaðar

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Farsímakerfi.

3

Pikkaðu á

Heiti aðgangsstaða.

4

Pikkaðu á hvaða hluti sem eru til staðar til að skoða fleiri atriði.

Ef nokkrar tengingar eru tiltækar er virka nettengingin gefin til kynna með merktum hnappi .