Sony Xperia T2 Ultra - Týnt tæki fundið

background image

Týnt tæki fundið

Ef þú ert með Google™ reikning getur „Protection by my Xperia“ netþjónustan hjálpað

þér að finna og tryggja tækið ef þú glatar því. Ef þú hefur kveikt á þessari þjónustu í

tækinu geturðu:

Staðsett tækið þitt á korti.

Látið áminningartón hljóma jafnvel þó á tækið sé stillt á að trufla ekki.

Fjarlæst tækinu og birt tengiliðaupplýsingar á skjánum fyrir þann sem finnur tækið.

Fjareytt öllu úr innri og ytri minnisgeymslu tækisins þegar allt annað hefur verið reynt.

„Protection by my Xperia“ þjónustan er e.t.v. ekki í boði í öllum löndum/svæðum.

Protection by my Xperia þjónustan virkjuð á tækinu þínu

1

Gakktu úr skugga um að þú sért með virka gagnatengingu.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Öryggi > Vernd með my Xperia > Virkja.

4

Merktu við gátreitinn til að samþykkja ákvæði og skilmála þess að nota Protection

by my Xperia þjónustuna og pikkaðu svo á

Samþykkja.

5

Ef þú ert beðin(n) um það skaltu skrá þig inn á Google™ reikninginn þinn, eða

stofna nýjan ef þú átt ekki reikning fyrir.

6

Gerðu staðsetningarþjónustur virkar í tækinu ef þær eru það ekki fyrir.

Til að staðfesta að Protection by my Xperia þjónustan finni tækið eftir að þú virkjar þjónustuna

ferðu á

myxperia.sonymobile.com

og skráir þig inn með sama Google™ reikningi og er

uppsettur á tækinu.